laugardagur, 9. febrúar 2008

sæl og blessuð

jæja, ég hef ákveðið að rita nokkur orð hér, ykkar til mikillar skemmtunar... ekki satt? mest lítið að frétta úr firðinum fagra, en samt alltaf svo gaman hérna :) mín búin að vera á egs alla síðustu viku þar sem Barkaæfingar og stúss voru í gangi þannig ég ákvað bara að vera hjá Ásu frænku :) en svo var bara enginn Barki eftir allt saman þar sem veður er búið að vera leiðinlegt og Páll Óskar og Björgvin Franz vildu ekki taka sénsinn á því að komast ekki heim í dag...
þannig Láran góða var bara tekin á þetta eins og svo oft áður :) og það er alltaf klassískt :) fékk samt einhverja nokkra fyrirlestra frá fólki sem kannski gerði kvöldið aðeins minna skemmtilegt, en þetta var samt svo fínt eitthvað :) fullt af einhverjum Norðmönnum að reyna að dansa við allt og alla og ég var ekki alveg að fíla það...
svo er það planið að hittast aftur í kvöld og gera eitthvað skemmtilegt :) halda áfram að spila Undir sólinni sem var spilað í rafmagnsleysinu í gær sem hrjáði okkur í um það bil hálftíma... mjög kósý samt :)
jæææja, spurning um að hætta þessu og gera eitthvað af viti sem ég er nú búin að gera eitthvað lítið af í dag! ætla að heyra í stelpunum og tjekka á statusinum fyrir kvöldið :)
far vel ;)

4 ummæli:

  1. jeiiiij nýtt blogggg

    SvaraEyða
  2. Ég sé að það hefur lagst á ykkur bloggæðið sem gengur hér um á veraldarvefnum..

    SvaraEyða
  3. jáá, það er alveg greinilegt!

    SvaraEyða
  4. ...vavi, nytt blogg, vid dawid erum skoda fullt af sidum, rosalega gaman hja okkur!! Aettum kannski ad vera ad gera eitthvad annad og tharfara... ;)

    SvaraEyða